Börn á RÚV
Hótel Transylvania
Hotel Transylvania
Fjölskyldumynd sem gerist á fimm stjörnu hóteli Drakúla markgreifa, þar sem skrýmsli og fjölskyldur þeirra geta notið lífsins, og verið þau sjálf án þess að einhver sé að ónáða þau. Drakúla hefur ákveðið að halda sérstaka helgi og bjóða öllum frægustu skrýmslum í heimi á hótelið, þar á meðal Frankenstein hjónunum, Múmíunni, Ósýnilega manninum, varúlfafjölskyldunni og fleirum til að halda upp á 118. afmælisdag dóttur sinnar Mavis. Þetta ætti að vera auðvelt verkefni fyrir Drakúla, en áætlun hans fer öll handaskolum þegar mannvera kemur á hótelið í fyrsta skipti, og rennir auk þess hýru auga til Mavis.
RÚV - Efstaleiti 1, 103 Reykjavík - Sími: 515 3000 Fax: 515 3010 - © RÚV 2021